Teikningar arkitekta koma frá Fermco og er nauðsynlegt að yfirfara þær ásamt viðskiptavini og íslenskum arkitekt, sem staðfestir að þær séu réttar miðað við tilboðsbeiðni og teikningu bygginganefndar. Nú þarf tilboðshafi að undirrita hverja teikningu fyrir sig.

Ef um er að ræða breytingar á aukahlutum eftir undirskrift tilboðshafa er það sett í form: CHANGE ORDER og getur þá orðið annað hvort hækkun eða lækkun á verði. Undirritaður samningur er síðan sendur til Fermco Industries, þaðan kemur hann til baka ásamt leiðbeiningum um bankaábyrgð (Letter of Credit) sem viðskiptabanki kaupandans þarf að fá í hendur og senda til Fermco ásamt afriti undirritaðs samnings.

Frá þeim degi sem Fermco hefur fengið alla pappíra í hendur hefst byggingarferlið en viðmiðunarreglan er að um 5 vikur taki að framleiða húsið.