Þegar kostnaðaráætlun berst til baka er hún yfirfarin af Dalkó ásamt eiganda hússins og hvers kyns breytingar gerðar á tilboði ef með þarf áður en endanlegt tilboð er samþykkt.

Þegar að þessum tímapunkti er komið þarf að gera grein fyrir hverjir munu koma að verkinu: arkitekt, verkfræðingur og byggingarstjóri. Einnig þarf að fá tilboð smiða á vegum Dalkó í að reisa húsið, þ.e.a.s. fullklára það að utan og að gera það fokhelt að innan.

Þegar eigandinn fær endanlegt tilboð í hendurnar og hefur ákveðið tímasetningar við uppsetningu hússins gerðir hann óafturkræft staðfestingargjald 6000–10.000 CAD (fer eftir stærð og íburði hússins) sem dregst síðan frá heildarkostnaði á verði hússins. Leiðarvísir varðandi staðfestingargjaldið fæst hjá fulltrúum Dalkó ehf.