Nú þarf að gefa upp skráða eigendur hússins, staðfestingargjald (6000–10.000 CAD) og 20% innborgun eigi húsið að koma átta vikum eftir staðfestingu. Í öllum tilvikum er bankaábyrgð fengin fyrir eftirstöðvunum af verði hússins. Húsbréf fást eftir að húsið er orðið fokhelt, þ.e. fullklárað að utan með klæðningu (allt að 7,6 milljónir).



Tilboðshafi nýtur samninga Dalkó við Eimskip á flutningskostnaði.
Vinsamlega hafið samband við Pétur Jakob Petersen í síma 525-7266 eða petur@eimskip.is sem er ráðgjafi hjá Eimskip. Pétur mun gefa þér góð ráð varðandi flutning á byggingarstað og tollafgreiðslu. Flutningstími frá Kanada til Íslands er u.þ.b. 14–-25 dagar.



Farmtrygging
Dalkó er með fulltrúa hjá Vátryggingafélagi Íslands, Gísla Þorsteinsson í síma 560-5060 eða gislith@vis.is, vegna farmtrygginga í hafi. Að sjálfsögðu er hægt að semja við önnur tryggingarfélög og ganga frá farmtryggingu. Athugið að semja þarf um greiðslu hið fyrsta til að húsið verði afgreitt í skip í Kanada