Keyrt af: MessageBot

 

 

 

 


Draumahúsið á viðráðanlegu verði

Einingahúsin frá Dalkó eru góður kostur fyrir þá sem vilja eignast draumahúsið á viðráðanlegu verði. Íslenskir arkitektar koma að hönnun húsanna og taka þeir sérstakt tillit til aðstæðna hér á landi meðal annars í efnisvali og frágangi.

Stærsti kosturinn við húsin er að þau eru nánast algerlega viðhaldsfrí og þarf fólk því ekki að hafa neinar áhyggjur af seinni tíma vandamálum með tilheyrandi aukakostnaði.

Húsin koma í tilsniðnum einingum og eru hönnuð eftir þörfum og fjárhag hvers og eins. Auk þess að vera sérlega hagkvæmur valkostur eru Dalkó-einingahúsin afar vönduð og fljótleg í uppsetningu.

Hægt er að fá Dalkó-einingahúsin á ýmsum stigum en algengast er að kaupendur taki þau ósamsett í gámum beint á byggingarlóð.

Verð er breytilegt eftir stærð húsa og aukahlutum en sem dæmi er meðalverð á 170 fermetra húsi á einni hæð með bílskúr á bilinu 6.400.000 til 7.000.000.

Innifalið í verðinu er eftirfarandi:

Veggeiningar, tilbúnar með gluggum
Allir innveggir tilsniðnir
Gifsklæðningar að innan
"CANEXELL" klæðning að utan
Forsmíðaðar þaksperrur
Krossviður á þak ásamt þakskífum
Inni- og skápahurðir
Bílskúrs- og útihurðir

Allar teikningar arkitekta frá KanadaDalkó hefur á að skipa einvala liði fagmanna, húsasmíðameistara sem gera þér tilboð í uppsetningu og arkitekta eða verkfræðinga sem veita aðstoð við hvers kyns breytingar sem þú hefur í huga.

Hikaðu ekki við að hafa samband við okkur ef þú ert í byggingarhugleiðingum. Saman getum við gert draumahúsið þitt að veruleika.





DALKÓ - KANADÍSK EININGAHÚS
Dalvegi 22 - 201 Kópavogi
- Sími 515-2770 - Myndsími: 515-2707
© 2001-2008 DALKÓ - Allur réttur áskilinn.